Sunday, December 26, 2004


Loahna og Kahlína (herbergisþernan, sem við köllum Afrísku drottninguna, vegna þess hvað hún er tignarleg. aldrei séð hana svona fína og reynar aldrei séð hárið á henni.  Posted by Hello

3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Gleðileg jól strákar og gaman að geta kíkt hér inn annað slagið og heyrt af ykkur fréttir. Jólin hér á klakanum voru frábær við vorum bara heima hjá okkur litla fjölskyldan saman og svo komu Mamma, pabbi, Ingimar, Palli og Frosti í kaffi seint um kvöldið þannig að það var þröngt á þingi en mjög gaman. Mikið er nú gaman að sjá að þið getið skemmt ykkur soldið í öllu annríkinu og ég vona að þið finnið ykkur smá stund einhvern tíma til að halda ykkar jól.
Kær Kveðja Sigrún Ósk

10:35 pm  
Anonymous Anonymous said...

Hæ elskurnar mínar!

Gleðileg jól! Jólin voru mjög góð hjá okkur vorum hjá Guffu og co. á aðfangadagskvöldi. En jóladagur var dáldið skrýtinn ekkert matarboð hjá pabba :( Þannig að við vorum bara heima og ég eldaði hangikjöt í fyrsta sinn og það heppnaðist bara svona líka vel.
Ég hringi í ykkur við fyrsta tækifæri.
Ég elska ykkur og sakna ykkar meira en orð fá lýst!
Ykkar dóttir
Lovísa Lilja :)

5:24 pm  
Blogger SOS.SA said...

hæ Sigrún mín

Gott að heyra að jólin hafi verið góð hjá ykkur. Ekki búin að vera mikil jól hérna. Vinna, vinna, borða (ef það er tími) og sofa.

8:45 pm  

Post a Comment

<< Home