Friday, June 08, 2007

Meiri orka og Puppy

Hér gengur lífið sinn vanagang. Hef haft mjög mikla orku eftir að hafa hætt allveg á lyfjunum og minnkað drykkjuna þar að auki. Bói er ekki alveg orðinn nógu góður, virðist sem þessi lyfjakúr hafi ekki virkað eins vel á hann og mig. Hann neitar að sjálfsögðu að fara til læknis og biður mig meira að segja að fara fyrir hann sem ég neita alfarið. Fór nú samt í apótekið og keypti einhver lyf sem hjálpa eitthvað aðeins og svo acedofilus eitthvað sem á að hjálpa líka.

Við vorum í 3 daga hjá Volga upp í DeRust. Yndislegt að geta slakað algerlega af og ekki þurfa að hafa neinar áhyggjur af rekstrinum. Anna bjó hérna með fjölskyldunni sinni og sá um reksturinn. Svo var ég búinn að þjálfa Ginu upp í að svara tölvupóstum þannig að við þurftum ekki einu sinni að hafa neinar áhyggjur af því. Volga hefur það mjög gott og er búin að koma sér vel fyrir. Hún er búin að breyta bílskúrnum sínum í stúdío og ætlar að fara að byrja aftur að mála, sem er mjög gott, enda hefur ekki varla málað neitt seinustu 3 ár.

Hér er búið að vera mjög rólegt að gera, enda vetur skollinn á. Það er nú samt varla hægt að kalla þetta vetur á íslenskan mælikvarða. Fer oftast upp fyrir 20 gráður á daginn og niður í svona 4-10 gráður á nóttunni. Veturinn er eiginlega fallegasti árstíminn hérna. Allt svo grænt og öll blómin í fullum blóma. Þetta er alger paradís

Lítur út fyrir að við séum loksins að fá hund. Höfum sagt allan þennan tíma sem við höfum verið hérna að einhver hundur myndi finna okkur. Það hefur nú tekið 3 ár, en nú virðist hann vera að koma inní líf okkar. Það var gestur sem gisti hérna hjá okkur fyrir viku síðan sem hringdi og sagðist vera með hund sem hún þyrfti að losna við enda ætti hún 6 hunda fyrir. Þessi hundur fannst einhverstaðar úti ásamt bróður sínum, mjög illa haldnir og vannærðir báðir. Þeir voru inn á dýraspítala í 10 daga, í ormahreinsun og fleiru og á drippi beint í æð. Bróðurinn hafði það ekki af, en þessi gerði það. Er bara 3 mánaða, en er víst mjög góður og stilltur hundur, þannig að við ákváðum að gefa honum séns. Það verður komið með hann til okkar á sunnudaginn. Það verður spennandi að sjá hvernig það fer........

1 Comments:

Anonymous Anonymous said...

halló hver fer fyrir einhvern til læknis, ég bara spyr...ja, hann er nú með smá sting þarna, og slæmur yfir höfðinu, en ég veit nú samt eiginlega ekki meira, what... nei nei bara skella sér til doktors sjálfur,og finna út hvað er að, og reyna að koma því í lag....
Jórunn systir er að keppa á smáþjóðaleikunum, og krækti sér í bronsið daman...í loftskambyssu, varð í 7 sæti í loftriffli, og Helgi mágur komst í úrslit, en lenti svo í 9 sæti. húrrum fyrir þeim,og þessu undarlega áhugamáli. Amma dreki er á Heruvaktinni, og ég hef reynt að hjálpa til, þessi litla dama er alveg fullt fang, og kemur örugglega til með að keppa í áhættuíþróttum með góðum stuðningi foreldra sinna er hún verður eldri, ég held að það sé búið að panta fyrir hana bæði kajak og mótorhjól, svona til að byrja með. Styttist í frí hjá mér, fer þá í húsmæðraorlofið mitt til DK og mála nokkrar myndir...það verður vonandi ljúft...elsku kallar, farið vel með ykkur, hugsa til ykkar love Hafdís

11:52 am  

Post a Comment

<< Home