Wednesday, May 14, 2008

Ákvarðanir teknar

Já það er kominn mánuður, en er það ekki að verða standardinn á þessu lélega bloggi?

Never mind. Hér er búið að vera óveður og Greyton komst enn og aftur á forsíðuna á Cape Times (SA mogginn) Voru miklir vindar hér, já meiri en þeir gerast á Kjalarnesi. Tré brotnuðu, þök fuku, eldar herjuðu, bændabýli brunnu og fólk þurfti að fara í ána til að bjarga sér meðan eldurinn fór hjá. Sem betur fer skemmdist ekkert hér nema girðinging féll (til nágranna frá helvíti sem betur fer hafa ekki komið hingað á annað ár) og nokkur tré brotnuðu. Meðan allt þetta gekk á, náði ég að reka einn þjón, Roseline, synd vegna þess að hún er góð, en hún var búin að vera erfið og með kjaft og stæla. Ég stóð hana að því að stara á tóma diska í eldhúsinu að bíða eftir að Louna setti mat á þá fyrir gesti og á meðan þurfti ég að sinna gestum sem er það sem ég fíla sýst (er ypsilon í þessu?) Hún svaraði mér fullum hálsi og ég sagði henni að kokkarnir hringdu bjöllu þegar maturinn væri til og hún þyrfti ekki að horfa á diskana. Ég sagði henni að ef henni líkaði ekki reglurnar hérna, þá vissi hún hvar hurðin væri. Hún gekk út þá og þegar og eiginlega erum við báðir fegnir þrátt fyrir að það sé eftirsjá í henni.

Við fórum aftur í sumarbústaðarferð um daginn. Fórum á Oewerzicht sem er vínbúgarður hérna rétt fyrir utan Greyton (svo ég gæti keyrt inn og gert upp kassan og tékkað á e-mail) Þar tókum við ákvarðanir, kominn tími til, enda erum við ekki að verða ríkir á þessum reksti. Ákváðum að loka alla vegna þrjá daga í viku. Hafa samt opið, en bara með okkur og einum þjóni ásamt kannski einum aðstoðarkokki og loka svo um kvöldið, enda mjög lítið að gera. Nýr staður opnaði fyrir nokkrum vikum og hefur náð að stela aðeins frá okkur. Gerist alltaf, en við höfum séð þá koma fara þessi 4 ár sem við höfum verið hérna. Sumir hafa meira að segja haft fleiri en 3 eigendur´á þessum tíma. Erum enn að vinna í því hvernig við gerum þetta nákvæmlega vegna þess að við viljum ekki missa gott starfsfólk. Meira um það seinna.

Takk öll fyrir góðar kveðjur - Villi

Ps. Ég skal ýta þessu að Guðmundi, en það verður ekki auðvelt. Hann nefnilega þykist ekki kunna á tölvur og heldur því fram að hann sé með tölvufælni. Getur samt alveg skrifað tölvupósta og fleira......

3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Hæ og hó! Mikið gladdi það mitt gamla hjarta að lesa nýja bloggið, en hræðilegt með óveðrið. Gott mál ef þið getið lokað nokkra daga í viku, vonandi gengur það upp án þess að þið missið gott starfsfólk. Helv...nýi staður að stela af ykkur kúnnum. Getum við ekki sent einhvern hræðilegan kokk frá Íslandi og sagt að hann sé margfaldur meistari? Þá kemur fólk bara einu sinni á staðinn :) Hér er komið alvöru vor og allt á uppleið, Goði, tré, gras og ég. Love u, Anna Kristine PS Hvenær kemurðu til Íslands Villi? Ætlar Guðmundur ekkert að koma?

12:14 pm  
Anonymous Anonymous said...

Hæ drengir góðir
Nei, Villi minn - það er ekki "ypsilon" ( úí sagði mamma gamla ) - Hafið það alltaf sem best. Hér er búin að vera frekar leiðinlegur dagur. Það er verið að segja upp slatta af starfsmönnum og það meira að segja fólki sem er búið að vinna frá "örófi alda". Það biðja allir að heilsa ykkur
"luv ye"
Systir Sigurjón

4:56 pm  
Anonymous Anonymous said...

Sælir kæru Villi og Guðmundur !
Mikið er nú gott að það skuli þó vera bloggað amk einu sinni í mánuði,er ekki viss um að það hafi alltaf tekist á þessu ári, sei nó mor. En þið eruð nú löglega afsakaðir núna - hafandi staðið í óveðri og svona - ekki ólíklegt að rafmagnið hafi farið af nokkrum sinnum ? Og, elsku Villi, það er síst af öllu ypsilon í síst :-) hvað er þetta með ypsilon ? Hér grænkar grasið og gróa trén og syngja fuglarnir. Skrítið að hjá ykkur sé allur gróður að visna og komið haust. Reyndar, í þetta eina skipti sem ég hef komið til Suður-Afríku var hávetur, og það var nú ekki erfiður vetur, fór aldrei mikið niður fyrir 20 gráðurnar, nema rétt í bítið á morgnana ( milli 6 og 8, taktu við því) þegar lagt var í leiðangur til að sjá dýr merkurinnar. Mikið væri nú skemmtilegt að sjá framan í ykkur á Íslandi áður en hér kemur vetur aftur - ekki gleyma að hringja og hittast ef þið farið í frí heim :-). Vona að þið rúllið bráðlega yfir samkeppnisaðilana í nágrenninu ykkar og viðskiptin blómstri, og þið líka.
Bestu kveðjur, Inga

9:27 am  

Post a Comment

<< Home