Thursday, November 12, 2009

Hér er allt við það sama.

Við erum rétt að ná okkur eftir áfallið vegna innbrotsins sem kom mjög illa við peninga punginn okkar í miðri kreppu. Vorum með fund um daginn með starfsfólkinu þar sem við tilkynntum frekari niðurskurð. Nú eru þau nánast einungis að vinna um helgar. Við lögðum jafnframt til að þau skyldu fara að svipast um eftir annari vinnu. Við myndum skilja það ef þau fengu meiri vinnu annars staðar. Þau virtust taka þessu vel og mið skilning, en þetta er mikið áfall fyrir þau og fjölskyldu þeirra. Nú eru það einungis ég og Guðmundur sem höldum veitingstaðnum opnum með okkar eigin matseðli, sem er bara það sem okkur dettur í hug þá og þegar með það samt í huga að nýta allar birgðir okkar af mat. Er þreyttur núna, Vorum báðir bundinn í eldhúsinu meginhlutan í gær við undirbúning. Fékk smá pásu og svo var ég fastur við eldavélina frá 6 til 11 um kvöldið. Mikið að gera og það var á mörkunum að við hefðum það. Vinsælasti rétturinn á þessum kvöldum hefur verið íslenskar kjötbollur. Er búinn að ná að gera mjög gott kjötfars og það leggst mjög vel í fólkið hér. Það kláraðist eiginlega allt nema kjötbollurnar. Þurfti að sjóða meiri kartöflur fyrir seinasta borðið, lambið kláraðist, steikurnar kláruðust, Grænmetið kláraðist, þetta var semsagt allt mjög tæpt en gekk samt mjög vel. Allir í skýjunum yfir matnum, en djísus hvað maður er búinn eftir svona kvöld. Þetta bætist nefnilega ofan á allt annað sem maður þarf að gera hérna. Er samt ekki að kvarta, veitir ekki af hverri krónu sem kemur í kassann. Ætla að leggja til við Guðmund að við lokum í kvöld og förum út að borða. Veit ekki hvað það er langt síðan við höfum farið út að borða. Sjáum til. Nú þetta bréf er nú eiginlega orðið einskonar blogg. Kannski ég byrji aftur með bloggið

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Líst mjög vel á að þú byrjir að blogga aftur. Allt gott af mér að frétta..... Kom í morgunn til Dubai og verð hér fram á þriðjudag, geggjað. Það er frekar erfitt að vera í Nígeríu svo ég segi ekki meir...... Það er takmarkað hægt að borða, allavega þori ég ekki að borða allt. Eins og þú veist þá verð ég að fá gott í gogginn, barasvona til að halda geðheilsu.... Líst vel á íslenskan matseðil hjá ykkur......
Bestu kveðjur til allra....
Afríkudrottningin- Hófý

ps er eiginlega á röngum stað í Afríku...

11:13 am  
Anonymous Anonymous said...

Elsku strákarnir. Þetta hefur nú verið meira baslið, sem vonandi endar sem fyrst. Ég myndi prófa að gera "Svikinn héra" og kanna hvernig það líkar - með súrum gúrkum, rauðkáli og brúnuðum kartöflum ............ :o)
Hafið það alltaf sem best - Saknaðarkveðja
Systir Sigurjón

2:11 pm  

Post a Comment

<< Home