Tuesday, July 11, 2006

Slæmar Fréttir

Eftir mjög annasama helgi, þar sem við vorum fullbókaðir, fengum við mjög slæmar fréttir að heiman í gær. Mamma hans Bóa varð bráðkvödd seinnipartinn í gær. Fékk hjartaslag. Bói flýgur heim í kvöld. Ég verð eftir eina ferðina enn, vegna þess að það er ekki hægt að skilja hótelið eftir án okkar. Noelle kemur til með að hjálpa mér þannig að ég geti alla vegna fengið einhverjar pásur og svo verður Anne sett upp á fleiri vaktir. Líklega kem ég til með að fá Gabríel (manninn hennar Gleði) til að keyra eitthvað fyrir mig meðan ég er einn þannig að þetta á nú allt saman að geta gengið vel. Endilega hugsið vel um hann Bóa minn meðan hann er heima. Veit ekki hvort hann kemur til með að gista hjá Kristjáni (Rækjukofa) eða hjá pabba sínum.

1 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Leiðinlegt að heyra, samhryggist innilega.
Vonandi gengur þér sæmilega einum frændi og nærð að taka smá break.
Annars er allt fínt að frétta af mér og mínum, ákvað að skilja eftir smá comment svona einu sinni, en ég er dyggur lesandi hér.
Kveðja Sigrún Ósk

3:09 pm  

Post a Comment

<< Home